Vængmaðurinn Ousmane Dembélé fór ekki með til Lundúna en PSG heimsækir Arsenal í Meistaradeild Evrópu á morgun. Luis Enrique, þjálfari PSG, valdi hann ekki í hópinn vegna rifrildis þeirra á milli.
Dembélé lagði upp mark í 3:1-sigri PSG á Rennes um helgina en í Enrique var ekki ánægður með ákvörðunartökur leikmannsins í leiknum. Þeir áttu fund eftir leik þar sem þeir rifust um frammistöðu leikmannsins.
Í kjölfarið ákvað Enrique að liðinu væri betur borgið að spila án vængmannsins sterka og af þeim sökum varð Dembélé eftir í París þegar lagt var af stað til Lundúna.