Fyrrverandi landsliðsmaður stunginn til bana

Alton Meiring var stunginn til bana
Alton Meiring var stunginn til bana Ljósmynd/Luso Africa

Knattspyrnumaðurinn fyrrverandi Alton Meiring var stunginn til bana í Höfðaborg í heimalandinu Suður-Afríku í gær. Hann var 48 ára gamall.

Meiring lék allan ferilinn í heimalandinu og var mikill markaskorari, en hann skoraði fyrir níu mismunandi lið í efstu deild Suður-Afríku.

Hann lék tvo leiki með landsliði Suður-Afríku og var annar þeirra vináttuleikur gegn Englandi á Wembley.

Eftir leikmannaferilinn fór hann út í þjálfun og var aðstoðarþjálfari nokkurra liða í heimalandinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert