Franski knattspyrnumaðurinn Antoine Griezmann er hættur að spila fyrir landsliðið. Sóknarmaðurinn tilkynnti þetta á Instagram í dag.
Griezmann varð markakóngur EM 2016 og heimsmeistari með franska liðinu 2018 í Rússlandi en hann lék 137 landsleiki og skoraði í þeim 44 mörk.
„Með hjartað fullt af minningum lýk ég þessum kafla lífs míns. Takk fyrir yndislegt ævintýri. Við sjáumst fljótt“, skrifar Griezmann á Instagram-síðu sína.