Real og Arsenal vilja ungan Brasilíumann

Leikmaðurinn er aðeins 18 ára.
Leikmaðurinn er aðeins 18 ára. Ljósmynd/Palmeiras

Real Madrid og Arsenal eru á meðal félaga sem hafa mikinn áhuga á að fá brasilíska varnarmanninn Vitor Reis til liðs við sig.

The Athletic greinir frá. Hann er 18 ára gamall miðvörður, sem hefur leikið átta leiki með Palmeiras í efstu deild Brasilíu. Hann hefur leikið með U16 og U17 ára landsliðum þjóðar sinnar. 

Leikmaðurinn ungi er samningsbundinn félaginu til ársins 2028. Hann er með klásúlu sem gefur félögum kleift að kaupa hann á 100 milljónir evra, en brasilíska félagið er líklegt til að samþykkja mun lægri tilboð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert