Guðrún Arnardóttir og samherjar hennar hjá sænska knattspyrnuliðinu Rosengård eru ekki sáttar við Roger Palmgren, yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu.
Palmgren montaði sig af gengi Rosengård-liðsins í hlaðvarpi í vikunni og gerði tilraun til að eigna sér heiðurinn af velgengninni.
Rosengård hefur leikið 21 leik í sænsku úrvalsdeildinni á leiktíðinni og unnið þá alla. Þarf liðið því aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér titilinn. Guðrún er í lykilhlutverki hjá liðinu, sem hefur aðeins fengið á sig fimm mörk.
Caroline Seger, liðsfélagi Guðrúnar, hraunaði yfir Palmgren á Instagram. „Að fólk skuli trúa honum þegar hann reynir að eigna sér heiðurinn af einhverju sem hann á ENGAN þátt í,“ skrifaði hún og bætti við kúkabroskalli.
Guðrún og fleiri samherjar deildu færslunni og eru leikmenn augljóslega ekki sáttir við ummælin.