Sænska knattspyrnufélagið Linköping hefur vikið Rafael Roldán úr starfi sem þjálfari kvennaliðs félagsins, en hann tók við liðinu fyrir tímabilið.
Linköping endaði í þriðja sæti deildarinnar á síðustu leiktíð en er nú í áttunda sæti með 25 stig eftir 21 leik.
María Catharina Ólafsdóttir Gros er leikmaður Linköping og fær brátt nýjan þjálfara.