Carvajal verður lengi frá vegna meiðsla

Dani Carvajal er fyrirliði Real Madrid
Dani Carvajal er fyrirliði Real Madrid AFP/Franck Fife

Spænski bakvörðurinn Dani Carvajal er með slitið krossband og er ólíklegt að hann spili meira á þessu tímabili.

Carvajal er fyrirliði Real Madrid en ljóst er að Madridarmenn þurfi að vera án hans næstu mánuðina.

„Við getum staðfest að fyrirliði okkar, Dani Carvajal, verður lengi frá en hann er með slitið krossband,“ sagði Real Madrid í yfirlýsingu eftir leik liðsins gegn Villarreal í gær.

Carvajal staðfesti síðan á samfélagsmiðlinum X að hann væri á leið í aðgerð.

„Ég hlakka til að byrja endurhæfingarferlið og ég kem dýrvitlaus til baka. Takk fyrir öll skilaboðin,“ skrifaði Carvajal.

Real Madrid vann leikinn, 2:0, með mörkum frá Federico Valverde og Vinicius Junior.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert