Fortuna Düsseldorf tapaði illa á heimavelli fyrir Hamburger SV í þýsku B-deildinni í fótbolta í dag en lokatölur urðu 3:0 fyrir Hamburger SV.
Ísak Bergmann Jóhannesson spilaði allan leikinn fyrir Dusseldorf og Valgeir Lunddal Friðriksson lék fyrstu 78 mínúturnar og náði að krækja sér í gult spjald á 35. mínútu.
Jean-Luc Dompe skoraði fyrsta markið fyrir Hamburger SV áður en Robert Glatzel bætti við tveimur mörkum undir lok leiks. Í millitíðinni hafði Giovanni Haag, miðjumanni Düsseldorf, verið vikið af velli með rautt spjald.
Eftir leikinn er Düsseldorf ennþá á toppi deildarinnar með 17 stig eftir átta leiki en Hamburger SV er komið upp í 5. sæti með 15 stig einnig eftir átta leiki.