Ronaldo vill fá De Bruyne til Sádí-Arabíu

Kevin De Bruyne er eftirsóttur.
Kevin De Bruyne er eftirsóttur. AFP/Henry Nicholls

Cristiano Ronaldo, leikmaður Al-Nassr, hefur beðið stjórnarmenn félagsins að gera tilboð í Kevin De Bruyne, miðjumann Manchester City, þegar samningur Belgans rennur út eftir yfirstandandi tímabil.

De Bruyne, sem talinn er vera einn allra besti leikmaður heims í dag, hefur áður tjáð sig um möguleikann á því að færa sig til Sádí-Arabíu.

„Ég er búinn að lesa margar fyrirsagnir um möguleg félagskipti til Sádí-Arabíu en ég hef ekki rætt það við neinn,“ sagði De Bruyne við belgískan fjölmiðil í sumar.

„Ég á meira en nóg af peningum en ef ég fæ mjög gott tilboð frá liði í Sádí-Arabíu þá er það einnig fyrir fjölskylduna mína, ættingja, barnabörnin mín, barnabarnabörnin mín og vini mína.“

Ronaldo vill að Al-Nassr geri Belganum tilboð sem hann geti ekki hafnað og að þeir verði liðsfélagar á næsta tímabili.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert