Sævar Atli Magnússon skoraði jöfnunarmark Lyngby gegn Randers í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Oliver Olsen kom Randers yfir á 40. mínútu áður en Sævar Atli jafnaði á 66. mínútu með góðu skoti. Sævar fór síðan af velli á 87. mínútu.
Eftir leikinn er Lyngby í 10. sæti deildarinnar með 8 stig en Randers í 7. sæti með 15 stig.
Íslendingalið Sonderjyske tapaði illa á heimavelli gegn Nordjaelland, 1:4 í dag í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Daníel Leó Grétarsson lék allan leikinn í miðju varnar Sonderjyske en Kristall Máni Ingason var ekki með vegna meiðsla.
Eftir leikinn er Sonderjyske í 11. sæti með 8 stig en Nordsjaelland er í 5. sæti með 18 stig.