Karólína í mikilli toppbaráttu

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er í miklum toppslag með Leverkusen.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir er í miklum toppslag með Leverkusen. Kristinn Magnússon

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og samherjar hennar hjá Leverkusen höfðu betur gegn Jena, 1:0, í efstu deild þýska fótboltans í Leverkusen í kvöld. Hin 21 árs gamla Katharina Piljic skoraði sigurmarkið á 69. mínútu.

Leverkusen er í þriðja sæti deildarinnar með 13 stig, eins og Frankfurt í öðru sæti. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern München eru á toppnum með 15 stig.

Karólína var í byrjunarliði Leverkusen í kvöld að vanda og lék fram að 83. mínútu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert