Á skotskónum í grátlegu tapi

Jason Daði Svanþórsson skoraði mark Grimsby í kvöld.
Jason Daði Svanþórsson skoraði mark Grimsby í kvöld. mbl.is/Óttar Geirsson

Jason Daði Svanþórsson skoraði mark Grimsby þegar liðið mátti sætta sig við svekkjandi tap, 1:2, á heimavelli í 8. riðli neðrideildabikars Englands í kvöld.

Jason Daði byrjaði á varamannabekknum en kom inn á sem varamaður í hálfleik.

Hann kom svo Grimsby í forystu á 58. mínútu.

Lincoln jafnaði metin stuttu síðar, á 66. mínútu, og tryggði sér svo dramatískan sigur á fjórðu mínútu uppbótartíma.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert