Messi og Dagur Dan á meðal tilnefndra

Dagur Dan Þórhallsson í leik með íslenska landsliðinu.
Dagur Dan Þórhallsson í leik með íslenska landsliðinu. Ljósmynd/Alex Nicodim

Argentínska stórstjarnan Lionel Messi og íslenski knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson eru á meðal leikmanna í bandarísku MLS-deildinni sem tilnefndir eru til verðlauna fyrir frammistöðu sína á tímabilinu.

Messi, sem leikur með Inter Miami, er tilnefndur sem mikilvægasti leikmaður tímabilsins 2024 og Dagur er tilnefndur í flokki bestu varnarmanna tímabilsins.

Hinn fjölhæfi Dagur hefur mestmegnis leikið í stöðu hægri bakvarðar með liði sínu Orlando City á tímabilinu.

Opnað var fyrir kosningu í gær og lýkur henni mánudaginn 21. október.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert