Mögnuð Cecilía verðlaunuð

Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið afar vel fyrir Inter.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið afar vel fyrir Inter. Eggert Jóhannesson

Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir átti afar góðan leik fyrir Inter Mílanó er liðið gerði jafntefli við ríkjandi meistara Roma, 1:1, á útivelli í ítölsku A-deildinni í fótbolta á laugardag.

Cecilía varði níu skot í leiknum og átti stóran þátt í að Inter náði í gott stig gegn meisturunum. Enginn markvörður varði eins mikið og Cecilía í umferðinni. Mark Roma var sjálfsmark, sem Cecilía gat lítið gert í. 

Hún var verðlaunuð með sæti í liði fimmtu umferðarinnar, en liðið var birt á heimasíðu ítalska knattspyrnusambandsins.

Cecilía er að láni hjá Inter frá Bayern München en hún hefur mikið glímt við meiðsli undanfarin ár.

Inter er í þriðja sæti deildarinnar með ellefu stig, einu stigi á eftir Alexöndru Jóhannsdóttur og stöllum í Fiorentina og þremur á eftir toppliði Juventus. 

Cecilía er í liði 5. umferðarinnar.
Cecilía er í liði 5. umferðarinnar. Ljósmynd/Knattspyrnusamband Ítalíu
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert