Karólínu og stöllum mistókst að fara á toppinn

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir. mbl.is/Kristinn Magnússon

Werder Bremen og Bayer Leverkusen gerðu jafntefli, 1:1, í efstu deild þýska kvennafótboltans í Bremen í dag. 

Leverkusen hefði með sigri komist upp fyrir meistara Bayern München og á toppinn en liðið er í öðru sæti með 14 stig, stigi á eftir Bæjurum. 

Landsliðskonan Karólína Lea Vilhjálmsdóttir var í byrjunarliði Leverkusen en var tekin af velli í seinni hálfleik. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert