Króatía vann dramatískan sigur

Luka Modric með boltann í dag.
Luka Modric með boltann í dag. AFP/Damir Sencar

Króatía vann sterkan 2:1-sigur gegn Skotlandi í 1. riðli A-deildar Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu í dag.  

Ryan Christie kom Skotum yfir á 32. mínútu. Aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Igor Matanovic metin fyrir Króata. Staðan 1:1 í hálfleik.  

Andrej Kramaric skoraði síðan sigurmark Króata á 70. mínútu. Skotland jafnaði þó metin á áttundu mínútu uppbótartíma en markið var dæmt af vegna rangstæðu. Lokaniðurstöður því 2:1-sigur Króata. 

Króatía er í öðru sæti riðilsins með sex stig en Skotland í fjórða með 0 stig.  

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert