Krossbandið slitið hjá landsliðsmanninum

Valentin Carboni verður lengi frá.
Valentin Carboni verður lengi frá. AFP/Christophe Simon

Knattspyrnumaðurinn Valentin Carboni verður ekki meira með á tímabilinu eftir að hann sleit krossband á æfingu argentínska landsliðsins í Miami í vikunni.

Hinn 19 ára Carboni þykir einn efnilegasti miðjumaður Argentínu í dag. Hann er á mála hjá Inter Mílanó á Ítalíu en að láni hjá Marseille í Frakklandi út tímabilið.

Carboni hefur leikið þrjá A-landsleiki fyrir Argentínu. Hann var að láni hjá Monza í ítölsku A-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk í 31 leik.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert