Íslendingaliðin Kristianstad og Växjö gerðu jafntefli í æsispennandi leik, 3:3, í sænsku úrvalsdeildinni í Kristianstad í dag.
Eftir leikinn er Kristianstad í fjórða sæti með 43 stig en Växjö er í áttunda sæti með 27 stig.
Guðný Árnadóttir lagði upp fyrsta mark Kristianstad sem komst í 3:0. Hins vegar Moa Olsson í liði Kristianstad rautt spjald á 70. mínútu. Þá skoraði Växjö þrjú mörk á stuttum tíma og tryggði sér jafntefli.
Hlín Eiríksdóttir og Guðný spiluðu allan leikinn fyrir Kristianstad en Katla Tryggvadóttir fór af velli á 72. mínútu, stuttu eftir rauða spjaldið.
Bryndís Arna Níelsdóttir spilaði fyrstu 74. mínúturnar fyrir Växjö en Þórdís Elva Ágústsdóttir er varamarkvörður liðsins.