Sævar Atli kallaður inn í landsliðshópinn

Sævar Atli Magnússon leikur með Lyngby í Danmörku.
Sævar Atli Magnússon leikur með Lyngby í Danmörku. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sævar Atli Magnússon, leikmaður Lyngby í Danmörku, hefur verið kallaður inn í landsliðshóp karla fyrir leikinn gegn Tyrklandi á mánudaginn.  

Stefán Teitur Þórðarson og Jón Dagur Þorsteinsson fengu báðir gult spjald í 2:2-jafnteflinu gegn Wales í gær og eru þar með í leikbanni á mánudaginn.  

Åge Hareide landsliðsþjálfari valdi 24 leikmenn í hópinn en þar sem aðeins 23 mega vera á skýrslu þurfti Júlíus Magnússon, leikmaður Fredrikstad, að sitja hjá í gær.  

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert