Kylian Mbappé ætlar sér bara að spila allra mikilvægustu leiki franska landsliðsins til þess að forðast meiðsli.
Þetta kemur fram í spænsku miðlum en samkvæmt þeim tjáði hann franska knattspyrnusambandinu að hann vildi ekki taka þátt í minni verkefnum.
Mbappé, sem er fyrirliði landsliðsins, er hræddur við að meiðast og setur stefnuna á að vinna gullboltann árið 2025.
Mbappé er ekki með franska landsliðinu í yfirstandandi verkefni en hann náði sér ekki á strik á Evrópumótinu í sumar.