Sveindís hafði betur í Íslendingaslagnum

Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir leika knettinum á …
Glódís Perla Viggósdóttir og Sveindís Jane Jónsdóttir leika knettinum á landsliðsæfingu. mbl.is/Kristinn Magnússon

Wolfsburg hafði betur gegn Bayern München, 2:0, í þýsku 1. deildinni í dag.  

Vivien Endemann kom Wolfsburg yfir á níundu mínútu. Varamaðurinn Lineth Beerenstyen tvöfaldaði síðan forystu liðsins á 67. mínútu.  

Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Bayern og bar fyrirliðabandið. Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á fyrir Wolfsburg á 76. mínútu.  

Bayern er áfram á toppi deildarinnar með 15 stig eftir sex leiki. Wolfsburg situr í fjórða sæti með 13 stig.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert