Englendingar sigruðu í Finnlandi

Jack Grealish fagnar marki sínu ásamt Jude Bellingham og Trent …
Jack Grealish fagnar marki sínu ásamt Jude Bellingham og Trent Alexander-Arnold. AFP/Jonathan Nackstrand

England hafði betur gegn Finnlandi, 3:1, í 2. riðli B-deildar Þjóðadeildar Evrópu karla í knattspyrnu í dag.  

Jack Grealish kom Englendingum yfir á 18. mínútu. Staðan í hálfleik 1:0, Englandi í vil.  

Trent Alexander-Arnold tvöfaldaði forystu Englands með glæsilegu marki úr aukaspyrnu á 74. mínútu. Declan Rice innsiglaði síðan sigur Englendinga með marki á 84. mínútu.  

Aðeins þremur mínútum síðar náði Arttu Hoskenen að minnka muninn fyrir Finnland, 3:1.  

Úrslitin þýða að England situr í öðru sæti riðilsins með níu stig eftir fjóra leiki. Finnland er enn án stiga í riðlinum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert