Heimir: Getum gert betur

Heimir Hallgrímsson.
Heimir Hallgrímsson. AFP/Paul Faith

Lærisveinar Heimis Hallgrímssonar í írska landsliðinu töpuðu gegn Grikklandi í B-deild Þjóðadeildar Evrópu í fótbolta í kvöld.  

„Það er eins og þegar við fáum á okkur mark að öll pressan fari, þá höfum við meiri trú á þ sem við erum að gera. Það var eins gegn Finnlandi nema þá höfðum við hálfleikinn til að ræða, sagði Heimir í viðtali eftir leik.  

Írland hafði betur gegn Finnlandi, 2:1, á fimmtudaginn eftir að liðið lenti undir. Það var fyrsti sigur írska landsliðsins undir stjórn Heimis. 

„Við vitum að við getum gert betur. Við sáum það í síðari hálfleik að við getum gert betur. Þetta snýst bara um að hafa trú á liðinu og hvorum öðrum og byrja leikinn með þessari trú eins og við gerðum í síðari hálfleik, sagði Heimir 

„Mikið af jákvæðu sem hægt er að taka frá leiknum. Þú vilt samt ekki tapa og aldrei 2:0, sagði Heimir. 

Írland fær Finnland í heimsókn í næsta leik. Heimir hefur mikla trú á liðinu.  

„Ég trúi á þessa leikmenn og ég vona að fólk hafi séð að þetta lið getur verið mjög, mjög gott á sínum degi, sagði Heimir að lokum.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert