Heimir: Jól í október hjá írska landsliðinu

Heimir Hallgrímsson fagnar..
Heimir Hallgrímsson fagnar.. Ljósmynd/Írska knattspyrnusambandið

Heimir Hallgrímsson, þjálfari karlalandsliðs Írlands, var ósáttur við varnarleik sinna manna í tapi fyrir Grikklandi, 2:0, í fjórðu umferð 2. riðils í B-deild Þjóðadeildar Evrópu í knattspyrnu í Grikklandi í gærkvöldi. 

Írska liðið hefur unnið einn leik og tapað hinum þremur en liðið er í baráttu við Finnland um hvort liðið fellur niður í C-deild. 

Caoimhím Kelleher markvörður Írlands gerði mistök í fyrra marki Grikklands og kom Heimir inn á það í viðtali við írska Independent í gær. 

„Aftur eru jól hjá okkur í október. Við erum að gefa andstæðingum okkar allt of margar gjafir,“ sagði Heimir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert