Í fyrsta sinn?

Lautaro Martínez, Lionel Messi og Julian Álvarez.
Lautaro Martínez, Lionel Messi og Julian Álvarez. AFP/Samsett mynd

Knattspyrnustjörnurnar Lionel Messi, Lautaro Martínez og Julian Álvarez gætu byrjað í fyrsta sinn þrír frammi í leik Argentínu gegn Bólivíu í undankeppni heimsmeistaramótsins aðfaranótt miðvikudags. 

Argentínskir miðlar greina frá en leikmennirnir hafa aldrei verið allir þrír í byrjunarliði landsliðsins á sama tíma. 

Þrátt fyrir það hafa þeir allir leikið stórt hlutverki í afar sigursælu liði Argentínu sem hefur unnið þrjú stórmót í röð og þar á meðal heimsmeistaratitilinn. 

Álvarez og Martínez eru báðir framherjar og hafa yfirleitt skipt með sér mínútunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert