Landsliðskonan skoraði tvö í Danmörku

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir.
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir. Ljósmynd/@FCNordsjaelland

Emilia Kiær Ásgeirsdóttir átti frábæran leik fyrir Nordsjælland þegar liðið hafði betur gegn B93 í 16-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í Nordsjælland í dag.

Leiknum lauk með öruggum sigri Nordsjælland, 3:0, en Emilía lék allan leikinn með danska liðinu og skoraði tvívegis, á 3. og 69. mínútu.

Nordsjælland er því komið áfram í 8-liða úrslit bikarkeppninnar en Emilía hefur skorað 7 mörk í 9 leikjum í dönsku úrvalsdeildinni á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert