Mbappé sakaður um nauðgun

Kylian Mbappé í leik með Real Madríd.
Kylian Mbappé í leik með Real Madríd. AFP/Franck Fife

Lögreglan í Stokkhólmi í Svíþjóð hefur hafið rannsókn á meintri nauðgun þar sem franska stórstjarnan Kylian Mbappé, knattspyrnumaður hjá Real Madríd, liggur undir grun sem gerandi.

Sænsku miðlarnir Aftonbladet og Expressen greina frá.

Mbappé fór ásamt félögum sínum í heimsókn til Svíþjóðar í síðustu viku og dvöldu þeir í Stokkhólmi í tvo daga.

Meint nauðgun er sögð hafa átt sér stað síðastliðinn fimmtudag en Mbappé og félagar hans yfirgáfu Svíþjóð síðastliðinn föstudag.

Lögregla var mætt fyrir utan hótelið sem þeir gistu á síðastliðinn fimmtudag og stendur rannsókn nú yfir þó Aftonbladet og Expressen fái engar frekari upplýsingar um málið frá upplýsingafulltrúa lögreglunnar í Stokkhólmi.

Mbappé hefur tjáð sig um fréttaflutning sænsku miðlanna á samfélagsmiðlum þar sem hann hafnar ásökununum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert