Draumabyrjun Glódísar

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur sóttu stigin þrjú til Torínó.
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur sóttu stigin þrjú til Torínó. AFP/Christof Stache

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Bayern München fara frábærlega af stað í Meistaradeildinni en liðið vann Juventus, 2:0, í Torínó í dag. 

Bayern er með sex stig á toppi riðilsins en Juventus er í öðru sæti með þrjú stig. Arsenal og Vålerenga, þar sem Sædís Rún Heiðarsdóttir leikur, eru síðan án stiga en þau mætast á eftir. 

Glódís lék að vanda allan leikinn í hjarta varnar Bæjara. Linda Dallmann og Daninn Pernille Harder skoruðu mörk Bayern-liðsins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert