Í Parísarborg næstu árin

Luis Enrique.
Luis Enrique. AFP/Glyn Kirk

Spánverjinn Luis Enrique hefur skrifað undir nýjan samning við stórlið París SG í knattspyrnu karla. 

Nýi samningur gildir út maí árið 2027 en Enrique tók við Parísarliðinu fyrir síðustu leiktíð. 

París SG varð Frakklandsmeistari og komst í undanúrslit Meistaradeildarinnar á hans fyrsta tímabili en Enrique hefur einnig stýrt Roma, Celta Vigo, Barcelona og spænska landsliðinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert