Mbappé heiðraður þrátt fyrir ásakanirnar

Kylian Mbappé
Kylian Mbappé AFP/Fabrice Coffrini

Franski knattspyrnumaðurinn Kylian Mbappé var í dag útnefndur leikmaður septembermánaðar hjá félagsliði sínu Real Madrid á Spáni.

Mbappé var í vikunni sakaður um nauðgun í stuttu fríi sínu í Svíþjóð og er málið til rannsóknar hjá sænsku lögreglunni.

Franski sóknarmaðurinn neitar sök og er mættur aftur til æfinga hjá Real og verður væntanlega í byrjunarliðinu gegn Celta Vigo í spænsku 1. deildinni á laugardag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert