Messi: Kom ekki til að hætta

Lionel Messi í leiknum gegn Bólivíu.
Lionel Messi í leiknum gegn Bólivíu. AFP/Juan Mabromata

Argentínski knattspyrnusnillingurinn Lionel Messi á nóg eftir samkvæmt honum þrátt fyrir að vera orðinn 37 ára gamall. 

Messi var til viðtals hjá spænska miðlinum MARCA en hann hlaut verðlaun fyrir að hafa unnið flesta titla allra. 

Messi, sem hefur unnið allt sem hægt er á ferlinum, skoraði þrjú mörk og lagði upp tvö í 6:0-sigri Argentínu á Bólivíu aðfaranótt miðvikudags og minnti rækilega á sig. 

Argentínumaðurinn er leikmaður Inter Miami en hann sagðist ekki hafa komið þangað til að hætta. 

„Ég elska þessa íþrótt og kom ekki hingað til að hætta heldur til að gera þetta félag enn betra,“ sagði Messi við MARCA. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert