Stórliðin röðuðu inn mörkum

Linda Caicedo skoraði.
Linda Caicedo skoraði. AFP/Luis Acosta

Spænska stórliðið Real Madrid vann sannfærandi sigur á skoska liðinu Celtic, 4:0, í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í kvöld.

Hin skoska Caroline Weir kom Real yfir á 7. mínútu og var staðan 1:0 fram að 72. mínútu er Signe Brrun gerði annað markið.

Caroline Møller bætti við því þriðja á 80. mínútu og hin kólumbíska Linda Caicedo, sem sló í gegn á síðasta heimsmeistaramóti, gerði fjórða markið úr víti á 83. mínútu.

Ítalska liðið Roma gerði góða ferð til Istanbúl og vann Galatasaray, 6:1. Valentina Giacinti, Manuela Giugliano, Hawa Cissoko, Marta Pandini, Emilie Haavi og Alice Corelli skoruðu allar fyrir Roma. Andrea Stasková gerði mark Galatasaray.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert