Þrír Íslendingar á meðal 20 efnilegustu

Orri Steinn Óskarsson er á meðal þeirra.
Orri Steinn Óskarsson er á meðal þeirra. mbl.is/Eyþór

Þrír Íslendingar komast á lista yfir 20 efnilegustu leikmenn Norðurlandanna í knattspyrnu karla. 

Breski miðilinn DailyMail tekur saman listann en landsliðsmennirnir Orri Steinn Óskarsson og Hákon Arnar Haraldsson eru báðir á listanum. 

Þeir léku saman hjá FC Köbenhavn í Danmörku en Orri leikur nú með Real Sociedad á Spáni og Hákon með Lille í Frakklandi. 

Þá er William Cole Campbell einnig á listanum en hann er á mála hjá þýska stórliðinu Dortmund. 

Cole, sem er 18 ára gamall, á íslenska móður en bandarískan föður. Hann hefur verið að spila með yngri landsliðum Bandaríkjanna og er líklegur til að velja þjóðina fram yfir Ísland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert