Hollendingurinn Kevin Strootman hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
Strootman, sem er 34 ára gamall, lék síðast með Genoa á Ítalíu og var liðsfélagi Alberts Guðmundssonar.
Strootmann var miðjumaður sem lék 46 landsleiki fyrir Holland og 131 leik fyrir Roma á árunum 2013 til 2018.
Þá lék hann einnig með Sparta Rotterdam, Utrecht, PSV, Marseille og Cagliari.