Í góðu lagi með ungstirni Barcelona

Lamine Yamal verður með Barcelona annað kvöld.
Lamine Yamal verður með Barcelona annað kvöld. AFP/Lluis Gene

Lamine Yamal, mest spennandi knattspyrnumaður heims, verður með Barcelona þegar að liðið fær Sevilla í heimsókn í efstu deild Spánar annað kvöld. 

Yamal var sendur heim frá spænska landsliðinu eftir að hafa meiðst gegn Danmörku fyrir viku. 

Hansi Flick stjóri Börsunga staðfesti á blaðamannafundi að það væri í lagi með Yamal og þakkaði í leiðinni Luis de la Fuente, þjálfara Evrópumeistara Spánar, fyrir að senda hann snemma heim. 

Þá eru fleiri gleðifréttir fyrir Börsunga en Gavi, sem sleit krossband á síðasta tímabili, verður með annað kvöld líkt og Dani Olmo og Fermín López, sem hafa verið fjarverandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert