Landsliðsmaðurinn Ísak Bergmann Jóhannesson heldur áfram að blómstra með Düsseldorf en liðið vann Jahn Regensburg, 3:0, á útivelli í 2. deild þýska fótboltans í dag.
Düsseldorf er í toppsæti deildarinnar með 20 stig, fjórum stigum meira en næstu lið sem eiga þó leik til góða.
Ísak Bergmann fékk gult spjald á 43. mínútu fyrir að rífa kjaft við dómarann. Mínútu síðar lagði hann upp fyrsta mark Düsseldorf.