Sá leikjahæsti skoraði eftir fjórar mínútur

Birkir Bjarnason.
Birkir Bjarnason. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Birkir Bjarnason, leikjahæsti leikmaður íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu og leikmaður Brescia á Ítalíu, var ekki lengi að láta að sér kveða í dag.

Birkir kom inn á hjá Brescia á 78. mínúútu þegar liðið tók á móti Sassuolo í ítölsku B-deildinni en það tók miðjumanninn fjórar mínútur að minnka muninn í 4:2 en leiknum lauk með öruggum sigri Sassuolo, 5:2.

Brescia er með 13 stig í fimmta sæti B-deildarinnar eftir fyrstu níu umferðirnar en þetta var fyrsta mark Birkis fyrir félagið á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert