Cecilía hélt hreinu gegn toppliðinu

Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið afar vel fyrir Inter.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur leikið afar vel fyrir Inter. Eggert Jóhannesson

Landsliðsmarkvörðurinn Cecilía Rán Rúnarsdóttir hélt hreinu í marki Inter Mílanó gegn toppliði Juventus í Mílanóborg í dag. 

Leikar enduðu 0:0 en Inter er með 15 stig í þriðja sæti, fjórum stigum minna en toppliðið. 

Cecilía hefur spilað afar vel með Inter og aðeins fengið á sig þrjú mörk í fimm leikjum í deildinni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert