Hetja Þýskalandsmeistaranna í alvarlegu bílslysi

Victor Boniface fagnar marki sínu í gær.
Victor Boniface fagnar marki sínu í gær. AFP/Ina Fassbender

Nígeríski framhjerinn Victor Boniface lenti í hræðilegu bílslysi í gær eftir að hafa skorað sigurmark Bayer Leverkusen í efstu deild Þýskalands í knattspyrnu.   

Betur fór en á horfðist en Boniface varð aðeins fyrir minniháttar meiðslum á hendi. Nígeríumaðurinn gaf út á samfélagsmiðlum að það væri í lagi með hann og þakkaði guði fyrir að ekki hafi farið verr.  

Bayer Leverkusen hafði betur gegn Eintracht Frankfurt, 2:1, í gær og skoraði Boniface sigurmark liðsins á 71. mínútu.  

Boniface hefur byrjað tímabilið afar vel með Leverkusen og er með fimm mörk í sex byrjunarliðsleikjum fyrir félagið í deildinni.  

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert