Sædís norskur meistari

Sædís Rún Heiðarsdóttir eftir leik með íslenska landsliðinu.
Sædís Rún Heiðarsdóttir eftir leik með íslenska landsliðinu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sædís Rún Heiðarsdóttir og stöllur í Vålerenga eru norskir meistarar í knattspyrnu kvenna eftir heimasigur á Kolbotn í dag. 

Vålerenga-liðið er orðið meistari þrátt fyrir að þrjár umferðir séu eftir að norsku deildinni en liðið er með 66 stig, ellefu á undan Brann en aðeins níu stig eru eftir fyrir lið til að vinna. 

Sædís var á sínum stað í byrjunarliði Vålerenga en hún hefur átt mjög gott fyrsta tímabil í Noregi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert