Skoraði í stórsigri

Guðmundur Þórarinsson skoraði þriðja mark Noah í dag.
Guðmundur Þórarinsson skoraði þriðja mark Noah í dag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Guðmundur Þórarinsson skoraði í stórsigri Noah gegn Van, 5:0, í armensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag.  

Guðmundur byrjaði leikinn á bekknum en kom inn á í hálfleik. Hann skoraði þriðja mark liðsins á 75. mínútu.  

Noah situr í fjórða sæti armensku úrvalsdeildarinnar með 16 stig eftir átta leiki. Liðið mætir Víkingi í Sambandsdeildinni eftir nokkrar vikur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert