Stöðva þurfti leik Hammarby og Djurgården í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu vegna óláta stuðningsmanna Djurgården í gær.
Á 76. mínútu, þegar Hammarby var með 2:0-forystu, köstuðu stuðningsmenn Djurgården flugeldum og blysum inn á völlinn.
Leikurinn var stöðvaður í kjölfarið og voru liðin kölluð inn í búningsklefa. Að lokum tók lögreglan ákvörðun um að fresta leiknum og þurftu allir að yfirgefa völlinn.
Gunnar Strömmer, dómsmálaráðherra Svíþjóðar, tjáði sig um málið hjá sænska ríkisútvarpinu SVT.
„Ég held að allir séu sammála um að það sé óásættanlegt að henda flugeldum á völlinn. Ég skynja mikla samstöðu í þessu máli meðal fótboltaheimsins,“ sagði dómsmálaráðherrann.
Leikurinn mun halda áfram klukkan 14 að staðartíma í dag, 16 að íslenskum tíma. Þá verður leikið án áhorfenda.