Aron sneri aftur í tapi

Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu á síðasta …
Aron Einar Gunnarsson í leik með íslenska landsliðinu á síðasta ári. mbl.is/Kristinn Magnússon

Aron Einar Gunnarsson lék sinn annan leik fyrir Al Gharafa þegar hann var í byrjunarliðinu í tapi katarska liðsins fyrir Al Wasl frá Sameinuðu arabísku furstadæmunum í Meistaradeild Asíu í knattspyrnu í dag. Urðu lokatölur 1:2.

Aron Einar er einungis gjaldgengur í Meistaradeildinni en getur farið að spila í katörsku deildinni um áramótin.

Hann meiddist í fyrsta leik sínum fyrir Al Gharafa í keppninni fyrir þremur vikum síðan en lék fyrstu 85 mínúturnar á miðjunni í dag.

Al Gharafa er með þrjú stig í deildarkeppni Meistaradeildar Asíu eftir þrjá leiki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert