Arsenal hafði betur gegn Shakhtar Donetsk frá Úkraínu, 1:0, í þriðju umferð Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu karla á Emirates-vellinum í Lundúnum í kvöld.
Sigurmarkið var sjálfsmark Dmytro Riznyk markvarðar Shakhtar. Arsenal er með sjö stig eftir þrjá leiki í fimmta sæti og Shakhtar með eitt stig í 29. sæti.
Arsenal-liðið var mun meira með boltann og á 29. mínútu átti Gabriel Martinelli skot sem fór í stöngina. Þaðan barst boltinn í bakið á Riznyk og í netið, 1:0.
Arsenal fékk síðan vítaspyrnu þegar að 15 mínútur voru eftir af leiknum. Þá fékk Valeriy Bodar varnarmaður Shakhtar boltann í höndina og eftir athugun í VAR-sjánni var víti dæmt.
Á punktinn steig Leandro Trossard. Hann skaut á mitt markið en Riznyk varði frá honum með fótunum.
David Raya bjargaði vel á síðustu mínútum leiksins eftir góðar sóknir frá Shakhtar-liðinu.