Huggulegt skallamark Arnórs (myndskeið)

Arnór Ingvi Traustason skoraði í gær.
Arnór Ingvi Traustason skoraði í gær. mbl.is/Eyþór

Arnór Ingvi Traustason var á skotskónum er Norrköping og Brommapojkarna skildu jöfn, 1:1, í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gærkvöldi.

Njarðvíkingurinn jafnaði á lokamínútu fyrri hálfleiks með seinna marki leiksins. Hann lék allan leikinn fyrir sitt lið. Hlynur Freyr Karlsson lék allan leikinn með Brommapojkarna.

Mark íslenska landsliðsmannsins má sjá hér fyrir neðan, en um huggulegt skallamark er að ræða.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert