Neymar sneri aftur ári síðar

Neymar þráttar við dómarann í leik Al Hilal og Al …
Neymar þráttar við dómarann í leik Al Hilal og Al Ain í gær. AFP

Brasilíski knattspyrnumaðurinn Neymar sneri aftur á völlinn eftir rétt rúmlega árs fjarveru vegna alvarlegra hnémeiðsla þegar hann kom inn á sem varamaður hjá félagsliði sínu Al Hilal í Meistaradeild Asíu í gær.

Neymar sleit krossband í hné í október á síðasta ári og hafði verið frá í rúmt ár, 369 daga, þegar hann kom inn á gegn Al Ain í deildarkeppni Meistaradeildarinnar á 77. mínútu. Lauk leiknum með 5:4-sigri Al Hilal í ótrúlegum leik.

Hann er 32 ára gamall og samdi við Al Hilal í Sádi-Arabíu sumarið 2023.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert