Hvetja einn þann besta til þess að hætta

Manuel Neuer.
Manuel Neuer. AFP/Josep Lago

Ítalinn Fabio Capello og Þjóðverjinn Lothar Matthäus hafa báðir hvatt Manuel Neuer, markvörð knattspyrnuliðs Bayern München í Þýskalandi, til þess að leggja hanskana á hilluna.

Neuer stóð á milli stanganna hjá Bæjurum í gær þegar liðið tapaði illa fyrir Barcelona, 4:1, á Spáni.

„Þegar markverðir ná ákveðnum aldri þá þurfa þeir að sýna hugrekki, hugrekki til þess að hætta,“ sagði Capello á Sky Sports.

Matthäus tók í sama streng og Capello en hann lék 150 A-landleiki fyrir Þýskaland og vestur-Þýskaland á árunum 1980 til ársins 2000.

„Manuel Neuer er ekki Manuel Neuer í augnablikinu. Hann er ekki gefur varnarmönnunum lítið sem ekkert sjálfsöryggi,“ sagði Matthäus í samtali við Bild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka