Slot í sögubækurnar

Arne Slot hefur byrjað frábærlega hjá Liverpool.
Arne Slot hefur byrjað frábærlega hjá Liverpool. AFP/Ronny Hartmann

Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur farið afskaplega vel af stað með enska liðið eftir að hann tók við starfinu af Jürgen Klopp í sumar. Slot hefur unnið 11 af fyrstu 12 leikjum sínum við stjórnvölinn.

Þar með er hann fyrsti knattspyrnustjórinn í sögunni sem stýrir ensku liði í efstu deild og vinnur fyrstu 11 af 12 leikjum sínum í öllum keppnum.

Liverpool trónir á toppi ensku úrvalsdeildarinnar, einu stigi fyrir ofan Manchester City og er í öðru sæti í deildarkeppni Meistaradeildar Evrópu með fullt hús stiga líkt og Aston Villa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka