England og Þýskaland mættust í stórskemmtilegum vináttulandsleik kvenna í fótbolta á Wembley í Lundúnum í kvöld. Urðu lokatölur í sjö marka leik 4:3, Þýskalandi í vil.
Giulia Gwinn gerði tvö mörk fyrir Þýskaland og þær Klara Bühl og Sara Däbritz komust einnig á blað.
Georgia Stanway, sem leikur með Glódísi Perlu Viggósdóttur hjá þýska liðinu Bayern München, gerði tvö fyrir England og Lucy Bronze skoraði sömuleiðis.
Bæði lið hafa tryggt sér sæti á lokamóti EM í Sviss sem fram fer á næsta ári. Íslenska landsliðið hefur gert það sömuleiðis.