Svíþjóð vann sannfærandi útisigur á Lúxemborg, 4:0, í fyrri leik liðanna í undanúrslitum umspils Evrópumóts kvenna í fótbolta í kvöld.
Lokamótið fer fram í Sviss á næsta ári og hefur Ísland þegar tryggt sér sæti á lokamótinu. Svíþjóð er komin með annan fótinn í úrslit umspilsins eftir leikinn í kvöld.
Stina Blackstenius, Johanna Kaneryd, Filippa Angeldahl og Evelyn Ijeh gerðu mörk sænska liðsins. Seinni leikurinn fer fram í Svíþjóð á þriðjudag.